Mömmumatstofan varð bara til si svona fyrr í vetur og flokkaðist framan af sem þokkalega varðveitt leyndarmál í veitingabransanum á Akureyri. Orðsporið aflétti leyndinni smám saman og umsvifin jukust, enda sýndi sig fljótt að maturinn hennar mömmu á sér marga, dygga formælendur.

Staðurinn er Norðurslóðasetrið að Strandgötu 53 á Akureyri og stundin er hádegið alla sjö daga vikunnar. Arngrími Jóhannssyni, stofnanda og eiganda Norðurslóða, og Aðalsteini Bergdal staðarhaldara datt í hug í fyrrahaust að bjóða upp á í hádeginu það sem þeir kalla einfaldlega mömmumat: fisk, bollur úr fiski, farsi eða kjöti, grjónagraut, svikinn héra og fleira álíka kunnuglegt úr heimaeldhúsum landsmanna. Einn ákveðinn rétt í hvert sinn. Einfalt mál. Þetta spurðist brátt út og starfsfólk í fyrirtækjum á Eyrinni fór að mæta og mætir enn.

Á Þorláksmessu komu 160 manns í skötu og þá var þrísetið í salnum. Þrjú fyrirtæki hafa nú samið við Norðurslóð um hádegismat handa starfsmönnum sínum. Þarna mæta því daglega fastir kostgangarar og svo hinir og þessir, ferðamenn á Akureyri og fastbúandi.

Þverskorna ýsan gekk ekki

Mesta annríkið er að jafnaði á föstudögum. Þá er til skiptis á matseðlinum saltkjöt og baunir eða kjöt og kjötsúpa. Máltíðin kostar 1.500 krónur alla daga, súpa og kaffi innifalið. Ekki fælir verðlagið frá.

Viðbrögðin hafa orðið til þess að í bígerð er að selja líka mat tvö kvöld í viku til að byrja með. Matstofan er að sjálfsögðu með öll tilskilin leyfi til veitingahúsareksturs, þar með talið vínveitingaleyfi.

„Við prófuðum að vera með þverskorna ýsu á matseðli einn dag í viku en það gekk ekki,“ segir Arngrímur. „Á daginn kom að yngra fólkið kunni ekki að beinhreinsa fiskstykkin og vildi fá eitthvað annað á diskinn sinn. Þannig er nú komið fyrir sjávarútvegsþjóðinni!“

Fékk eldskírn sem kokkur til sjós

Aðalsteinn Bergdal sér um matreiðsluna. Hann hefur hingað til verið þekktari fyrir leiklist en matarlist. Á daginn kemur að staðarhaldarinn kann meira fyrir sér í eldamennsku en margan grunar.

„Ég neyddist til þess að læra að búa til hafragraut sjálfur áður en ég fór í skólann á Akureyri forðum daga. Mamma vann við hreingerningar hjá Jóni G. Sólnes í Landsbankanum og fór að heiman snemma á morgnana. Sonurinn varð þá einfaldlega að bjarga sér.

Þetta vatt upp á sig, reyndar svo mjög að síðar var ég kokkur til sjós um hríð og kröfuharðari kostgangara er vart hægt að finna.

Ég hef alltaf haft gaman af því að elda og tek mér góðan tíma til að búa til mat handa mér einum heima. Föndra við réttina og nýt þess mjög.“

Viðhafnarveisla við sjóndeildarhringinn

Norðurslóðasetrið var opnað í janúar 2017 og fagnaði því eins árs afmæli á dögunum. Það hvarflaði hvorki að Arngrími né öðrum þá að ári síðar yrði veitingarekstur orðinn sá vaxtarsproti setursins sem raun ber vitni. Hann segir að viðtökurnar komi sér þægilega á óvart:

„Vænst þykir mér um að sjá fleiri og fleiri sveitunga mína, heimamenn á Akureyri, hérna í hádeginu. Við höfum hvergi auglýst matsöluna, heldur látið umtalið annast kynninguna út á við.

Fljótlega förum við að selja líka mat á kvöldin en byrjum rólega með því að hafa eingöngu opið í fyrstu á föstudags- og laugardagskvöldum. Sjáum svo til. Við höfum ekki tímasett upphafið en alla vega liggur fyrir að byrja með stæl. Valinkunnir snillingar munu sjá um eldamennsku og umsjón með tímamótaveislunni fyrsta kvöldið: Friðrik V. og Adda (Friðrik V. Karlsson og Arnrún Magnúsdóttir) og Axel Jónsson eigandi Skólamatar í Keflavík.

Hvað sem öðru líður hugsum við fyrst og fremst vel um kúnnana í hádeginu, enda vinir okkar sem koma hingað dag eftir dag til að hylla matinn hennar mömmu.“

Texti & myndir: Atli Rúnar Halldórsson
Birtist fyrst í Morgunblaðinu 1. febrúar 2018

Gjörið svo vel – á mánudegi!