Warning: Undefined array key "margin_above" in /home/sysl/public_html/wp-content/plugins/ultimate-social-media-icons/libs/controllers/sfsiocns_OnPosts.php on line 623
Warning: Undefined array key "margin_below" in /home/sysl/public_html/wp-content/plugins/ultimate-social-media-icons/libs/controllers/sfsiocns_OnPosts.php on line 624
Söngvaskálið Valgeir Guðjónsson og fjöldi ungra tónlistarmanna á Norðurlandi koma fram á tónleikum Skagfirska gamlingjanum til kynningar og stuðnings orlofi eldri borgara á Löngumýri í Skagafirði. Skagfirski gamlinginn verður í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 14. mars og hefst kl. 20. Kynnir Gísli Einarsson, sjónvarpsmaður og skemmtikraftur.
Þeir sem koma fram ásamt Valgeiri Guðjónssyni:
- Systurnar Ragnhildur Sigurlaug og Sigurbjörg Svandís Guttormsdætur, fæddar 2007 og 2010. Þær eiga heima á Grænumýri í Skagafirði og ganga í Varmahlíðarskóla. Ragnhildur Sigurlaug leikur á fiðlu og syngur líka í kór. Sigurbjörg Svandís leikur á píanó og einnig dálítið á fiðlu.
- Matthildur Ingimarsdóttir á Flugumýri í Skagafirði, fædd 2008. Hún syngur og leikur á píanó. Hún söng fyrst í brúðkaupi þriggja ára gömul og hefur notið bakradda Álftagerðisbræðra á tónleikum í Miðgarði.
- Tvíburabræðurnir Júlíus og Tryggvi Þorvaldssynir í Fjallabyggð stunda nám í Tónlistarskólanum á Tröllaskaga. Þeir eru líka í unglingahljómsveitinni Ronju og ræningjunum og eru með fastan, mánaðarlegan þátt á útvarpsstöðinni FM Trölla (trolli.is).
- Hljómsveitin Jazz-bandicoot er hópur ungs fólks sem kynntist í tónlistarskóla FÍH og leikur, djassskotin lög.
- Fróði Snæbjörnsson frá Blönduósi, hljómborð.
- Gunnar Sigfús Björnsson frá Varmalæk í Skagafirði, bassi.
- Sólrún Mjöll Kjartansdóttir úr Reykjavík, trommur.
- Tumi Torfason úr Reykjavík, trompett.
- Sigvaldi Helgi Gunnarsson, söngur og gítar.
- Löngumýrarkvartettinn er góðkunnur öllum sem dvalið hafa í orlofi á Löngumýri í Skagafirði.
- Gunnar Rögnvaldsson, staðarhaldari og skemmtikraftur á Löngumýri.
- Íris Olga Lúðvíksdóttir, lífskúnstner og listakona, kennari og bóndi í Flatatungu í Skagafirði.
- Sigvaldi Helgi Gunnarsson og Bergrún Sóla Áskelsdóttir, sonur og tengdadóttir Gunnars staðarhaldara.
Aðgangur kostar 4 þúsund krónur.
Skráning vegna dvalar á Löngumýri hefst 19. mars
Þórey Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæma, hefur veg og vanda af því að undirbúa og skipuleggja bæði tónleikana Skagfirska gamlingjann og orlof eldri borgara í Skagafirði. Það hefur hún líka gert undanfarin ár og í fyrra komust færri að en vildu á Löngumýri. Þá dvöldu þar alls 180 manns í sex hópum og gert er ráð fyrir sex þrjátíu manna hópum líka á komandi sumri, 2019.
Skráning vegna Löngumýrar hefst þriðjudaginn 19. mars kl. 9 í símum 567 4810 og 666 9891.
- Hópur 1: Sunnudagur 26. maí til föstudags 31. maí – 5 nætur.
- Hópur 2: Sunnudagur 2. júní til laugardags 8. júní – 6 nætur.
- Hópur 3: Sunnudagur 16. júní til föstudags 21. júní – 5 nætur.
- Hópur 4: Sunnudagur 23. júní til föstudags 28. júní – 5 nætur.
- Hópur 5: Sunnudagur 30. júní til föstudags 5. júlí – 5 nætur.
- Hópur 6: Laugardagur 6. júlí til föstudags 12. júlí – 6 nætur.